SmartMedia og þjónustukaupi gera með sér eftirfarandi samning:

SmartMedia veitir þjónustukaupa gegn samningi þessum hýsingu á  vefsvæði hans, tölvupósti og gagnagrunnstengingu samkvæmt þeirri þjónustuleið sem að þjónustukaupi velur. Þjónustukaupi skal vera fjárráða og ekki vera í eldri vanskilum. SmartMedia rukkar fyrir þjónsustu sína undir nafninu SmartMedia ehf. Vefsvæði er vistað á netþjónum SmartMedia í umsaminn tíma.

Fyrsta ársgjaldið af nýju léni er innifalið við samþykkt þessa samnings.
Öll utanaðkomandi þjónusta eins og árgjald léna eftir fyrsta árið, vottun á vef og öll önnur utanaðkomandi þjónusta verður þjónustukaupi að greiða sjálfur og greiða það beint til viðkomandi þjónustuaðila.

Ábyrgðir

Allt það efni sem birtist á vefsvæði þjónustukaupa og öll þau gögn sem geymd eru í gagnagrunni þjónustukaupa eru ávallt á ábyrgð þjónustukaupa og ber þjónustuaðili enga ábyrgð á lögmæti gagnanna á einn eða annan hátt, hvað varðar höfundarrétt, siðgæði, hugsanleg meiðyrði eða nokkuð annað.

SmartMedia ber í engu tilviki ábyrgð á rekstartapi þjónustukaupa á einn eða annan hátt, þ.m.t. glötuðum ágóða, ráðgerðum sparnaði, hvort sem að rekja megi tjónið til þjónustu SmartMedia, tengingu kerfisins og vefsvæðis við annan tölvubúnað, vegna skemmda, galla, eyðileggingar á tölvu –eða  hugbúnaði eða annarra ástæðna. Ef upp kæmi að SmartMedia þyrfti að greiða þjónustukaupa bætur í tengslum við samning þennan getur krafan aldrei orðið hærri en sem nemur mánaðargjaldi þann tíma sem meint tjón varð til.

Afnot og aðgengi póstfangs sem og FTP aðgangs er bundið þeim aðila sem er skráður fyrir aðganginum. Hann ber jafnframt einn ábyrgð á því sem gert er með aðgangi hans. Þjónustukaupi er alfarið ábyrgur fyrir því að taka afrit af efni og gögnum sem geymd eru á heimasvæði hans, nema um annað sé samið.  SmartMedia ber enga ábyrgð á því ef gögn sem geymd eru á netþjóni okkar kunni að skemmast eða tapast.  Ef brotið er á ofangreindum reglum getur það valdið tafarlausri lokun á umsamdri þjónustu.

Gildistími og greiðsluskilmálar

Samningur þessi tekur gildi við undirskrift og er uppsegjanlegur 12 mánuðum seinna, ekki er hægt að segja honum upp fyrir þann tíma. Rafrænt samþykki á skilmálum og innihaldi þessa samnings jafngildir undirskrift.  Skal samningi þessum sagt upp skriflega að minnsta kosti 30 dögum áður en hann rennur út, ef svo er ekki gert endurnýjast hann sjálfkrafa um eitt ár.  Standi þjónustukaupi ekki við umsaminn mánaðargjöld vegna hýsingar og þjónustu er SmartMedia heimilt að fella niður þjónustuna innan mánaðar frá tilkynningu um að mánaðargjöld séu ógreidd, við þá tilkynningu gjaldfellur samningurinn. Ef vanskil standa yfir í meira en 60 daga er þjónustusala heimilt að rifta samningi þessum og fjarlægja allt efni verkkaupa af netþjónum sínum, samningur þessi gjaldfellur einnig við riftun samnings. Þjónustusali áskilur sér þann rétt að senda reikninga eða samninginn í heild sinni í innheimtu eftir 60 daga vanskil eða meira. Samningur þessi er einungis framseljanlegur af hálfu SmartMedia ehf.

 Þjónustukaupi greiðir SmartMedia fyrirfram hvern mánuð eða ár eftir því hvaða leið er valin. Gjaldið er skuldfært af greiðslukorti þjónustukaupa nema um annað sé samið. Verð fyrir hýsingu og þjónustu getur tekið breytingum miðað við þróun neysluvísitölu ársfjórðungslega. Gjaldið breytist samkvæmt verðskrá ef aukaþjónusta er nýtt t.d. dulkóðun, fleiri netföng, aukna virkni í síðu o.s.frv.

Trúnaðarupplýsingar

Aðilar þessa samnings skuldbinda sig til að gæta fyllsta trúnaðar um upplýsingar sem þeir kunna að fá um rekstur hvors annars. Jafnframt skuldbinda samningsaðilar sig til að gæta fyllsta trúnaðar gagnvart þriðja aðila um einstök ákvæði og innihald þessa samnings. Ákvæði þetta um trúnað heldur fullu gildi sínu þrátt fyrir að samningur renni út.

Ágreiningsmál

Verði höfðað mál vegna ágreinings um samning þennan skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
 

 


Bookmark and Share


www. .is

Við keyrum verðið niður

  •  Fyrsta árgjaldVefsvæðiMánaðargjald
  • finnalen.isFrítt300 MB2.990
  • len.isFrítt150 MB3.990
Skoða nánar