Spurt & Svarað

 
  1. Hvað er lén ?

    Lén er nafn á internetinu fyrir heimasíður, má eiginlega segja að lén séu heimilisfang heimasíðna. Algengustu lén á Íslandi hafa endinguna .is en algengustu lén í heiminum bera endingunna .com &.net.
     
  2. Hvað kostar stofngjald á .is léni ef ég kýs að greiða það sjálf/ur ?

    1.December 2008 felldi ISNIC niður stofngjald á lénum en stofngjaldið var 12.450 kr. með VSK.

    Í dag er aðeins greitt ársgjald þegar lén er keypt en það er 7.918 kr með vsk.
     
  3. Hvernig er eignarhaldi léna háttað ?

    Kaupandi heldur ávallt eignarrétti lénsins. Lénið er skráð á nafn/kennitölu viðkomandi eða fyrirtækis og er rétthafa ávallt frjálst að breyta um hýsingaraðila við lok samnings. Þegar stofngjald er greitt af SmartMedia ehf, þá er SmartMedia skráður greiðandi lénsins til að byrja með.
     
  4. Get ég stjórnað léninu mínu, uppsetningu ofl. ?

    Já, við notum eitt virtasta og þekktasta stjórnborð sem til er í dag; Cpanel. Þar geturðu stofnað þín eigin email og sett upp ftp server. Þú hefur fulla stjórn á léninu þínu með Cpanel.
     
  5. Eru þjónarnir ykkar hýstir erlendis ?

    Nei, allir okkar netþjónar eru hýstir á Íslandi. Vélarsalurinn er tengdur með varaafli og er einnig með tvöföldu kælikerfi.
     
  6. Eru gerð öryggisafrit af gögnun hýst hjá finnalén.is ?

    Við tökum aftrit af vefsvæðum í hverri viku, en við mælum þó auðvitað með því að fólk geri sín eigin afrit reglulega. Ekki eru tekinn afrit af póstföngum eða gögnum á FTP þjóni, það er alfarið á ábyrgð notanda.
     
  7. Hvar er hægt að finna skilmála finnalén.is?

    Hægt er að lesa skilmálana hérna.
     
  8. Hversu lengi er lénið frátekið hjá finnalén.is ?

    Aðeins er hægt að taka frá lén í tvo sólarhringa, samkvæmt reglum ISNIC. Ef að ekki er gengið frá greiðslu innan þess tíma, verður lénið aftur laust.
     
 


Bookmark and Share


www. .is

Við keyrum verðið niður

  •  Fyrsta árgjaldiðVefsvæðiMánaðargjald
  • finnalen.isFrítt300 MB2.990
  • len.isFrítt150 MB3.990
Skoða nánar